Herdís Sigurbergsdóttir
Skrifstofustjóri
Hefur starfað á stofunni síðan 2000. Herdís er andlit stofunnar og sér til þess að allir fái hlýjar móttökur og er ávallt með svör á reiðum höndum þegar hringt er á stofuna enda vanur fyrirliði þar á ferð.
Soffía Erlingsdóttir
Tanntæknir
Útskrifaðist sem tanntæknir frá Danmörku 2001 og hefur starfað á stofunni síðan 2014. Soffía passar uppá að vel fari um alla í tannlæknastólnum og tekur hlýlega á móti sjúklingum stofunnar.
Helga Gunnarsdóttir
hjúkrunarfræðingur
Helga útskrifaðist frá Hjúkrunarfræðideild HÍ árið 2009. Eftir útskrift starfaði hún á Landspítalanum í Fossvogi, deild A-4 til ársins 2012 þar sem hún annaðist meðal annars sjúklinga sem verið höfðu í kjálkaaðgerðum á spítalanum. Hún þekkir því vel til þessa sjúklingahóps. Helga hefur unnið á stofunni frá 2012. Hún er framkvæmdastjóri Munn- og kjálkaskurðlæknastofunnar, stofu Júlíusar Helga og Gunnars Inga, munn- og kjálkaskurðlækna.
Gerður Ósk Guðmundsdóttir
Tanntæknir
Gerður útskrifaðist af Tanntæknabraut Fjölbrautarskólans í Ármúla vorið 2016 hóf störf á Munn- og kjálkaskurðlæknastofunni strax að lokinni útskrift.